Mitt mat á þínum rekstri, ekki almenn kennsla um fyrirtæki.
Founder Architecture
Betra fyrirtæki. Meiri hagnaður. Meira frelsi.
Ég vinn með eigendum sem vilja bæta tilboð, verð, sölu og hagnað — og byggja fyrirtæki sem þarf ekki sífellt meira af þeim til að vaxa.

01Sterkara tilboð og betri verðlagning
02Meiri tekjur með betri hagnað
03Minni tími í það sem þarf ekki á eigandanum að halda
Ráðgjöf
Þú færð mig inn í raunverulegar ákvarðanir fyrirtækisins.
Við skoðum tölurnar, verðin, tilboðin, söluna og vinnuna sem fer í afhendinguna. Ég segi þér hvað ég myndi halda, hverju ég myndi breyta og hverju ég myndi hætta — og hvers vegna.
Þetta er ekki námskeið eða fyrirfram ákveðið kerfi. Vinnan tekur mið af fyrirtækinu þínu, markmiðunum þínum og ákvörðununum sem liggja fyrir núna.
Tölur, verð, sala, tilboð og hlutverk eigandans skoðað saman.
Við veljum hvað á að gera núna og fylgjum því eftir þar til það er komið í gagnið.
Úr ráðgjöfinni
Vandamál sem koma reglulega aftur á borðið.
Fyrirtækin eru ólík, en sömu vandamálin koma reglulega aftur.
Verðin hafa setið eftir.
Ég hitti enn þjálfara og sérfræðinga sem rukka svipuð verð og ég rukkaði fyrir tólf til fimmtán árum. Oft þarf ekki fleiri vörur eða meira efni. Það þarf betra tilboð og hugrekki til að verðleggja það rétt.
Meiri sala myndi skapa meira vesen.
Eftirspurn er ekki alltaf raunverulega vandamálið. Ef tvöfalt fleiri viðskiptavinir myndu gera reksturinn verri þarf fyrst að laga hvernig fyrirtækið selur, afhendir og notar tíma eigandans.
Tekjurnar jukust en svigrúmið ekki.
Fyrirtæki getur vaxið án þess að eigandinn finni það í hagnaði eða tíma. Þá þarf að skoða kostnaðinn við vöxtinn, hlutverk eigandans og hvað fyrirtækið á í raun að skila honum.
Founder Architecture
Flestir læra hvernig á að byggja fyrirtæki. Færri ákveða hvað fyrirtækið á að byggja fyrir þá.
Tekjur, hagnaður, eignir, áhugaverð vinna og frelsi geta allt verið hluti af markmiðinu. Arkitektúr fyrirtækisins ætti að fylgja lífinu sem eigandinn vill lifa.
Lesa: Til hvers er fyrirtækið?Vinna með mér
Tvær leiðir.
Ég vinn mest með þjálfurum, ráðgjöfum, sérfræðingum og eigendum lítilla þjónustufyrirtækja. Fyrirtækið þarf ekki að vera stórt. En eigandinn þarf að vera tilbúinn að horfa heiðarlega á hvernig það virkar.
Hálfur dagur
Ítarleg vinna um fyrirtækið, tölurnar og ákvörðunina sem skiptir mestu núna.
Spyrja um vinnufundÁframhaldandi ráðgjöf
Regluleg vinna með fáum eigendum sem vilja hafa mig með í mikilvægum ákvörðunum.
Spyrja um samstarfSamkomur og samtöl
Næsta skref eru litlar, lokaðar samkomur fyrir eigendur.
Ég er að þróa reglulegar samkomur þar sem við tölum hreinskilnislega um raunveruleg fyrirtæki, deilum reynslu og fáum af og til gesti sem hafa eitthvað gagnlegt fram að færa. Þetta er ekki opið samfélag enn.
Fá upplýsingar þegar þetta opnarEinar Kristjánsson
Ég ráðlegg úr rekstri — ekki af hliðarlínunni.
Ég stofnaði fyrsta fyrirtækið mitt átján ára og hef ekki unnið fyrir aðra síðan ég var tvítugur. Ég hef byggt líkamsræktarstöðvar, netþjálfun með hundruðum viðskiptavina og fleiri fyrirtæki í þjónustu og verslun.
Í dag rek ég Alphagym, ráðlegg eigendum og skrifa um það sem ég hef lært um vöxt, hagnað, ábyrgð og frelsi.
Skrif
Byrjaðu hér.
Founder Architecture
Seinni hálfleikurinn í rekstri
Tilgangur og stefna
Til hvers er fyrirtækið?
Einyrkjar og eignarhald
Áttu fyrirtæki — eða vinnurðu bara hjá sjálfum þér?
Hafa samband
Segðu mér frá fyrirtækinu.
Sendu mér nokkrar línur um reksturinn, tölurnar og það sem þú vilt breyta.
Senda tölvupóst einaringikristjansson@gmail.com